Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur óskað eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd komi saman á fundi hið fyrsta til að ræða málefni barna sem senda á úr landi til Grikklands og Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
„Af fréttaflutningi að dæma hafa hagsmunir barnanna ekki notið þess forgangs við ákvarðanatöku sem þau hafa rétt á samkvæmt lögum og barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Undirritaður er meðvitaður um að brottvísun sé yfirvofandi og því er brýn þörf á því að ráðherra málaflokksins svari fyrir aðgerðir undirstofnana sinna án tafar,“ segir Helgi í tölvupósti sem hann hefur sent nefndarmönnum.
Vísar Helgi Hrafn þar í mál tveggja fjölskyldna frá Afganistan sem til stendur að vísa til Grikklands þar sem þær hafa fengið alþjóðlega vernd þar.
Helgi Hrafn óskar eftir því að umboðsmaður barna verði viðstödd fundinn, en Salvör Nordal hefur sjálf óskað eftir því að ráðuneyti og Útlendingastofnun kanni hvort taka ætti til skoðunar meðferð á málum flóttamanna með hliðsjón af samningum Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum.
Þá óskar Helgi Hrafn jafnframt eftir því að fulltrúar UNICEF, Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála verði viðstaddir fundinn, auk dómsmálaráðherra.
Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, hafa boðað til mótmæla þar sem lagst er gegn því að börnum á flótta sé vísað af landi brott. Mótmælin hefjast kl. 17 við Hallgrímskirkju í dag og þaðan verður gengið niður á Austurvöll.