Ragnheiður stýrir kvikmyndaverðlaunum

Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin …
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna, sem verða afhent í Reykjavík 2020. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020. Alls sóttu 45 um starfið en sjö drógu síðar umsóknir sínar til baka. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg og mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

„Það var mat stjórnar að Ragnheiður Elín uppfyllti best þær hlutlægu og huglægu kröfur sem settar voru fram í starfslýsingu,“ segir í tilkynningunni, en verkefnastjóri vinnur að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna. Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í Hörpu í desember 2020

Samkvæmt tilkynningu eru helstu verkefnin sem Ragnheiður Elín á framundan þau að leiða saman samstarfsaðila, halda utan um samningagerð, afla styrkja, og vinna drög að styrktar- og kynningarstefnu verkefnisins.

„Ragnheiður Elín er með MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum og BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún er fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra og hefur fjölþætta reynslu af skipulagningu og stjórnun viðamikilla verkefna, bæði hér heima og erlendis. Hún þekkir vel til stjórnsýslu kvikmyndamála og málefna ferðaþjónustunnar sem fyrrverandi ráðherra. Hún hafði yfirumsjón með þátttöku Íslands í Heimssýningunni í Lissabon í starfi sínu hjá Útflutningsráði á sínum tíma og hefur frá því hún lét af störfum sem ráðherra sinnt ýmsum alþjóðatengdum verkefnum,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur í tilkynningu borgar og ráðuneytis að hátíðin og hliðarviðburðir tengdir henni muni laða að sér fjölmarga erlenda gesti og að vonast sé til þess að hún stuðli að öflugri kynningu og markaðssetningu á Íslandi og Reykjavík sem áfangastað og tökustað fyrir kvikmyndir.

„Tímasetning hátíðarinnar hentar vel en desember er yfirleitt sá mánuður þar sem líklegt er að slíkir viðburðir hafi hvað jákvæðust áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf auk þess sem margvísleg mikilvæg tækifæri gefast til þess að vekja athygli á íslenskri menningu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert