Kajakræðarinn Veiga Grétarsdóttir sem rær um þessar mundir rangsælis í kringum landið, hefur nú lokið róðri meðfram suðurströndinni og er komin til Hafnar í Hornarfirði.
Veiga er nú rúmlega hálfnuð með róðurinn og hefur jafnframt lokið erfiðasta kafla leiðarinnar, en hún lagði upp frá Ísafirði þriðjudaginn 14. maí.
Veiga hélt af stað austur suðurströndina í byrjun síðustu viku frá Vík í Mýrdal eftir nokkurra daga hvíld í Reykjavík. Hún segir að upphaflega hafi staðið til að koma í land á Höfn á sunnudagskvöld en vegna leiðindaveðurs þurfti hún að fresta því um dag og kom því í land um 16 kílómetra vestur af Höfn.
„Ég er búin að taka langa daga. Ég lenti í bara einni verstu lendingu sem ég hef nokkurn tímann lent í í fyrradag. Ég fór næstum því fram fyrir mig. Það hvessti skyndilega og ég þurfti að fara á land.“
Veiga reri svo síðasta spölinn að Höfn í gærkvöldi og var komin á áfangastað um klukkan 21.
Veiga hyggst vera á Höfn næstu daga og mun meðal annars halda fyrirlestur á Höfn annað kvöld.
„Ég þarf núna að þrífa allan búnaðinn minn eftir suðurströndina. Það er allt pakkað í sandi. Tjaldið mitt er bara eins og sandkassi. Ég var með sand í eyrunum. Ég ætla að þrífa bátinn og tjaldið áður en ég held áfram,“ segir Veiga og hlær.
„Það er góð spá næstu daga og þá verður kýlt á þetta aftur,“ segir Veiga sem stefnir á að leggja aftur af stað fyrir helgi.
Fylgjast má með nákvæmri staðsetningu Veigu og styrkja Pieta-samtökin hér.