Varðskipið Týr siglir til Hornstranda um helgina til að hirða rusl sem félagið Hreinni Hornstrandir safnaði saman fyrr í sumar. Hópur sjálfboðaliða hefur á síðustu árum unnið að því að hreinsa Hornstrandir og safna saman rusli og drasli sem hefur skolað þar á land. Þetta er í þriðja sinn sem varðskipið hirðir upp ruslið eftir tiltektina og kemur í viðurkennda endurvinnslu.
Á föstudaginn siglir varðskipið Týr til Ísafjarðar og sækir þar sjálfboðaliðana og fer með þá til Barðsvíkur. Á sunnudaginn er siglt aftur með fólkið til Ísafjarðar og ruslinu komið á viðeigandi stað. Í ár söfnuðust tæp 10 tonn af rusli.