Fyrirtækið WAB air er búið að sækja um flugrekstrarleyfi til Samgöngustofu, en það var gert fyrir um þremur vikum síðan. Greint er frá þessu á vefjum Vísis og RÚV, þar sem haft er eftir Sveini Inga Steinþórssyni, einum stofnanda fyrirtækisins, að undirbúningur að stofnun nýs flugfélags gangi vel.
Þá segir Sveinn, í samtali við RÚV, að stefnt sé að því að félagið verði íslenskt félag með íslenska kennitölu og flugrekstrarleyfi og íslenskt starfsfólk.
„Við munum byggja mikið á því góða fólki sem við höfum unnið með í gegn um tíðina,“ sagði Sveinn við RÚV, en hann er fyrrverandi yfirmaður hagdeildar WOW air og sat einnig í framkvæmdastjórn flugfélagsins.
Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að írski fjárfestingasjóðurinn Avianta Capital hefði skuldbundið sig til þess að leggja nýja flugfélaginu til rúmlega fimm milljarða króna í hlutafé, en samkvæmt frétt Fréttablaðsins yrði Avianta Capital 75% eigandi nýja félagsins á móti 25% hlut félagsins Neo.
Auk Sveins Inga er Neo í eigu Arnars Más Magnússonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs WOW air, Boga Guðmundssonar, lögmanns hjá Atlantik Legal Services og stjórnarformanns BusTravel, og Þórodds Ara Þóroddssonar, ráðgjafa í flugvélaviðskiptum í Lundúnum.