Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hyggst skipa starfshóp um þjónustu dýralækna í dreifðum byggðum og vaktþjónustu dýralækna. Hópurinn á að skila tillögum í október næstkomandi.
Frá 1. júlí hefur enginn dýralæknir verið starfandi í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eins og mbl.is hefur greint frá. Enginn hefur sótt um starfið sem var auglýst í mars á þessu ári. Á þeim tíma sagði eini starfandi dýralæknirinn á svæðinu upp þjónustusamningi sínum við MAST sem hann fullyrðir að sé „ómanneskjulegur“.
„Hlutverk starfshópsins er að taka núverandi skipulag þjónustunnar til endurskoðunar og með því tryggja aðgengi að dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum og utan dagvinnutíma á hagkvæman og aðgengilegan hátt, með áherslu á velferð dýra.“ Þetta kemur fram í skriflegu svari frá ráðuneytinu fyrir fyrirspurn mbl.is.
Óskað hefur verið eftir því að Dýralæknafélag Íslands og Matvælastofnun sendi tilnefningar í starfshópinn fyrir 6. ágúst.
Ekki fengust upplýsingar um hvort gripið verði til bráðabirgðaráðstafana til að manna stöðu dýralæknis á Vestfjörðum í millitíðinni.