Tugir grindhvala strönduðu í Löngufjörum á Vesturlandi. Lögreglan í Stykkishólmi er að kanna aðstæður. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins.
Þyrluflugmaður hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Reykjavík Helicopters tók meðfylgjandi myndir í flugi um kl. 14 í dag. Hann var með bandaríska ferðamenn í útsýnisflugi þegar þau ráku augun í dauð dýrin í fjöruborðinu.