Lokað hefur verið fyrir bílaumferð um Hellisheiði í átt til vesturs á milli Hveragerðis og afleggjara að Hellisheiðarvirkjun vegna malbikunarframkvæmda. Þeirri umferð verður beint um Þrengslaveg. Hins vegar verður opið fyrir umferð til austurs. Lokunin stendur yfir til 22 í kvöld, en reiknað er með að framkvæmdir muni einnig standa yfir á morgun, föstudag.
Malbikað verður frá Kambabrún og niður Hveradalabrekku um 9 kílómetra langan vegkafla.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir hafa verið settar upp og eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vegfarendur geta einnig fylgst með á vef Vegagerðarinnar.