„Það kemur manni á óvart að það sé verið að bregðast við þessu núna fyrst. Skipstjórnarmenn á nýja Herjólfi hafa bent á að það þurfi að gera breytingar á hafnarmannvirkjunum í Vestmannaeyjum og núna eru menn að vakna,” segir Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, um tafir á að nýr Herjólfur hefji siglingar.
Breyta þarf viðlegukanti í höfninni í Vestmannaeyjum áður en nýr Herjólfur getur hafið áætlunarsiglingu. Njáll furðar sig á seinagangi Vegagerðarinnar að hefjast handa við breytingar á höfninni. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar er óvíst hvort hann hefji áætlun fyrir verslunarmannahelgina vegna þessa.
Í ljós hefur komið að nýr Herjólfur þarf að fara í slipp til Akureyrar í haust vegna galla sem reyndist vera í öðrum jafnvægisugganum og sjór kemst í snertingu við olíu.
„Það geta alltaf komið upp hinir ýmsu hnökrar þegar nýsmíðuð skip eru tekin í gagnið. Ég veit ekki hvort þetta er eitthvað óeðlilegt og tel að þetta sé ekki áfellisdómur yfir skipinu,“ segir Njáll um að nýr Herjólfur þurfi að fara í slipp. Í þessu samhengi bendir hann á að þegar varðskipið Þór kom nýtt til landsins á sínum tíma þurfti einnig að gera ýmsar lagfæringar á skipinu vegna hristings í vélarrúmi áður en það var tekið í notkun.
„Við höfum alltaf Herjólf þriðja sem sinnir þessu hlutverki á meðan hinn er í slipp. Þetta á ekki eftir að hafa nein áhrif á ferðamátann milli lands og Eyja,“ segir Njáll.