Grindhvalir í höfninni í Keflavík

Grindhvalir á sjó. Mynd úr safni.
Grindhvalir á sjó. Mynd úr safni.

Grindhvalavaða er nú í höfninni í Keflavík. Fréttavefurinn Víkurfréttir greinir frá þessu og segir hvalina vera fjölmarga og halda sig í hóp í miðri höfninni.

Fjöldi fólks er komin í höfnina til  fylgjast með hvölunum frá landi, en Víkurfréttir birta á Facebook-síðu sinni drónamyndskeið af hvölunum.

Að sögn hafnarstarfsmanns hafa hvalirnir verið í höfninni frá því um fimmleytið í dag. Hann segir enga hættu á að hvalirnir strandi, þar sem aðdjúpt sé. Engin skip séu heldur á ferð um höfnina í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert