Niðurrif á Gelgjutanga

Húsin í Kjalarvogi sem verða rifin eru fyrir miðri mynd. …
Húsin í Kjalarvogi sem verða rifin eru fyrir miðri mynd. Norðan við húsin er athafnasvæði Samskipa en Snarfarahöfnin er sunnan megin. mbl.is/​Hari

Reykja­vík­ur­borg hef­ur samþykkt niðurrif á átta hús­um og einni botn­plötu á lóðinni núm­er 10 við Kjalar­vog. Sam­an­lagt flat­ar­mál þess­ara bygg­inga er 5.727 fer­metr­ar. Bygg­ing­arn­ar, sem standa á Gelgju­tanga, þurfa að víkja fyr­ir íbúðarbyggð, svo­kallaðri Voga­byggð 1. Gelgju­tangi er smánes sem skag­ar út í Elliðaár­vog á móts við Grafar­vog.

Á Gelgju­tanga hófst upp­bygg­ing skipa­smíðaiðnaðar á árum seinni heims­styrj­ald­ar og þar var byggð lít­il drátt­ar­braut. Meðal fyr­ir­tækja á nes­inu voru Keil­ir, Lands­smiðjan og Bátanaust. Olíu­fé­lagið hf.(Essó), nú N1, var með einnig starf­semi á Gelgju­tanga. Tak­mörkuð starf­semi hef­ur verið í hús­un­um síðustu árin. Sam­kvæmt húsa­skrá eru bygg­ing­arn­ar sem rífa á reist­ar á ár­un­um 1948-1981. Yngsta bygg­ing­in og jafn­framt sú stærsta er lag­er­bygg­ing frá 1981, 2.669 fer­metr­ar. Sú næst­stærsta og jafn­framt elsta er geymsla, byggð árið 1948.

Það er fyr­ir­tækið U14-20 ehf., Borg­ar­túni 25, sem sæk­ir um leyfi til niðurrifs­ins. Í hluta­fé­laga­skrá kem­ur fram að þetta er einka­hluta­fé­lag, stofnað árið 2017. Starf­semi þess er bygg­ing íbúðar- og at­vinnu­hús­næðis. Stofn­andi er Stein­steyp­an ehf., Kop­ar­hellu 1 í Hafnar­f­irði. Skráður stjórn­ar­formaður er Jó­hann Ásgeir Bald­urs og meðstjórn­andi Daní­el Þór Magnús­son. Hann er jafn­framt fram­kvæmda­stjóri og prókúru­hafi, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert