Norðurlandameisturum í brids fagnað

Sigursælt landsliðið var heiðrað í Ráðherrabústaðnum í dag.
Sigursælt landsliðið var heiðrað í Ráðherrabústaðnum í dag. Ljósmynd/Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Íslenska landsliðið í brids varð Norðurlandameistari eftir sigur á Dönum í hreinum úrslitaleik á Norðurlandamótinu sem fram fór í Kristiansand í Noregi fyrr í sumar. Af því tilefni var landsliðið heiðrað í Ráðherrabústaðnum síðasta föstudag. Liðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár en það varð einnig Norðurlandameistari árin 2013 og 2015. 

Brids nýtur talsverðra vinsælda á Íslandi en í dag eru starfandi 28 bridsfélög í öllum landshlutum, eins og kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Um 1.000 manns spila reglulega keppnisbrids í félögum innan Bridgesambands Íslands, auk þess sem fólk spilar brids sér til skemmtunar í heimahúsum og á vinnustöðum.

Því var einnig fagnað að Jón Baldursson, einn landsliðsmanna, var tekinn inn í frægðarhöll (e. hall of fame) Evrópska bridgesambandsins en aðeins 11 einstaklingar hafa notið þess heiðurs. 

„Ég óska liðinu hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur. Við getum svo sannarlega verið stolt af gengi landsliða okkar á hinum ýmsu sviðum. Brids á sér ákveðinn stað í hugum margra landsmanna sem hafa unun af því að koma saman og spila. Ég hef fulla trú á góðu gengi liðsins á Evrópumótinu sem fram fer á Madeira á næsta ári og vona svo sannarlega að afrekalisti liðsins lengist enn frekar,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert