Verið að slökkva í síðustu glæðum

Á vettvangi við Fornubúðir í Hafnarfirði er verið að slökkva í síðustu glæðum eldsins sem kom upp í atvinnuhúsnæði þar í nótt. Tjónið er mikið en hluti hússins slapp tiltölulega vel. Þar virðast þó vera reykskemmdir en verið er að kanna aðstæður þar inni.

mbl.is/Hari

Kló er notuð til þess að færa til rústir innan byggingarinnar en allt þakið á vesturhluta hússins er hrunið og sá hluti er rjúkandi rúst. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi en nú er minna svæði lokað en var í morgun og atvinnustarfsemi í húsum í kring farin í gang. 

mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert