Fordæmir vinnubrögð Seðlabankans

Þessi vinnubrögð bankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum sem …
Þessi vinnubrögð bankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum sem á ekki að viðgangast hjá opinberum stofnunum, segir Blaðamannafélag Íslands. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

„Blaðamannafélag Íslands fordæmir þau vinnubrögð sem Seðlabanki Íslands hefur viðhaft í kjölfar fyrirspurna blaðamanns Fréttablaðsins um launakjör og hlunnindi, sem bankinn hefur veitt starfsmönnum sínum.“

Þetta segir í yfirlýsingu á vef Blaðamannafélagsins, en málið varðar fyrirspurnir blaðamannsins Ara Brynjólfssonar um samning á milli Seðlabankans og Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans. 

Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir þvi að um hafi verið að ræða samning um styrk og laun í námsleyfi, sem hafi numið hátt á annan tug milljóna, en Ingibjörg kom ekki aftur til starfa fyrir bankann að námi loknu.

Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson

Blaðamannafélagið segir að öllum megi vera ljóst að þessi mál varði almenning í landinu og því sé „fráleitt“ hjá stjórnendum Seðlabankans að neita að veita þessar upplýsingar.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur komist að þeirri niðurstöðu að bankinn eigi að veita umbeðnar upplýsingarnar, en því vill bankinn ekki una.

„Af fréttum að dæma virðist hér vera um að ræða sérstakt mál innan bankans sem ekki styðst við neinar þekktar reglur eða fordæmi og því enn mikilvægara að upplýsa málið. Seðlabankinn er opinber stofnun og getur ekki hundsað að veita almenningi í landinu upplýsingar um starfsemi sína, ákvarðanir stjórnenda bankans og meðferð opinbers fjár,“ segir í yfirlýsingunni, sem Hjálmar Jónsson formaður félagsins undirritar.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.

Blaðamannafélagið fordæmir sérstaklega þá „fráleitu tilraun sem stjórnendur Seðlabankans hafa viðhaft til að þagga niður málið með því að stefna umræddum blaðamanni Fréttablaðsins fyrir dóm með það fyrir augum að stöðva umfjöllun hans um Seðlabankann.“

Krefjast þess að bankinn afhendi gögnin strax

„Þessi vinnubrögð bankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum sem á ekki að viðgangast hjá opinberum stofnunum. Að mati Blaðamannafélags Íslands er ólíðandi að blaðamenn þurfi að standa í langvinnum, dýrum og tímafrekum málarekstri til að fá upplýsingar frá opinberum aðilum sem þeir eiga rétt á að fá samkvæmt upplýsingalögum.

Blaðamaður Fréttablaðsins hefur unnið að málinu af samviskusemi og einurð og hefur nú niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál sér til fulltingis. Nefndin úrskurðaði að bankinn ætti að veita upplýsingarnar en þrátt fyrir þá niðurstöðu kýs bankinn að höfða mál á hendur viðkomandi blaðamanni.

Blaðamannafélag Íslands krefst þess að Seðlabankinn láti af þessum fyrirætlunum og afhendi gögnin strax.

Blaðamannafélag Íslands minnir á það mikilvæga hlutverk fjölmiðla að vera vettvangur fyrir þjóðina, æðsta vald lýðveldisins, til að nálgast upplýsingar vegna ákvarðana í mikilvægum málum. Því er brýnt að opinberir aðilar virði rétt blaðamanna til aðgangs að upplýsingum og beiti ekki öllum brögðum til að koma í veg fyrir slíkt,“ segir í yfirlýsingu Blaðamannafélagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert