Íslensku keppendurnir á heimsleikunum í crossfit munu þurfa að taka á honum stóra sínum í dag þegar þriðji keppnisdagur leikanna hefst klukkan þrjú í dag. Eftir fyrri þraut dagsins munu einungis 10 karlar og 10 konur standa eftir í keppninni um nafnbótina hraustasta fólk í heimi.
Ekkert hefur verið gefið út fyrir dagskrá dagsins, nema það að það verður tekið á sprett. Fyrsta æfingin verður sprettbraut og eftir hana kemur í ljós hverjir halda áfram og hverjir detta úr keppni.
Björgvin Karl Guðmundsson er efstur af íslensku keppendunum í 8. sæti í sínum flokki af 20 eftir tvo keppnisdaga.
Í samtali við Þröst Ólason tíðindamann mbl.is í Madison í gærkvöldi sagðist hann tilbúinn til að „negla“ þriðja keppnisdag og virtist mikill eldmóður í honum.
Fjórar íslenskar konur standa eftir í keppninni af tuttugu keppendum sem verður að teljast frábært afrek út af fyrir sig.
Af þeim situr Annie Mist Þórisdóttir efst í 10. sæti. Hún hefur komið inn af gríðarlegum krafti í keppnina í ár og er til alls líkleg.
Hún ætlar ekki að skilja neitt eftir á tankinum eftir þrautir dagsins í dag.
Katrín Tanja Davíðsdóttir fylgir henni fast á eftir og er í 11. sætinu. Þeir sem þekkja til Katrínar telja hana eiga inni einn aukagír hið minnsta og það verður fróðlegt að sjá hvort hún sýni það og sanni í dag.
Hún ætlar að berjast með kjafti og klóm í dag og það vita það allir sem hafa fylgst með Katrínu Tönju undanfarin ár að hún er vön því að standa við orð sín.
Þuríður Erla Helgadóttir er næst Íslendinga í 12. sæti. Það er alveg öruggt að hún mun ekki gefa tommu eftir í dag og er staðráðin í því að hoppa upp fyrir þær Annie Mist og Katrínu Tönju.
Af því sem hún segir á Instagram-síðu sinni er hún ekki nálægt því að vera orðinn södd og segir að í dag verði „allt eða ekkert“ í keppninni.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir rekur lestina í kvennaflokki og er í 20. sæti. Hún rétt slapp við niðurskurð í gær og það verður að teljast líklegt að hún muni gefa allt sitt í fyrstu þraut dagsins til að halda sér á lífi í keppninni.
Hún segir að nú sé kominn tími til að koma sér í skrímslaham eða „beastmode“.
Keppni hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.