Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra var heiðursgestur á hátíðarhöldum sem efnt var til í Gimli í Manitobafylki í Kanada í dag í tilefni að Íslendingadeginum, sem haldinn var þar haldinn hátíðlegur í 130. skipti.
Um er að ræða helstu hátíðarhöld á vegum fólks af íslenskum uppruna í Kanada og var efnt til mikillar dagskrá er í tilefni dagsins. Hápunkturinn var þó fjölmenn skrúðganga þar sem fulltrúar fjölmargra hópa tóku þátt.
Lilja greindi í ávarpi sínu frá samkomulagi mennta- og menningarmálaráðuneytis, forsætisráðuneytis og Háskóla Íslands um aukinn stuðning við íslenskudeildina við Manitobaháskóla í Winnipeg. Stuðningurinn felur í sér ráðningu kennara til þriggja ára við deildina sem mun meðal annars kenna námskeið í íslenskum bókmenntum, sinna framhaldsnemum deildarinnar, hafa umsjón með sumarnámskeiði á Íslandi fyrir nemendur deildarinnar og koma að útgáfustarfsemi í tengslum við bókmennta- og menningararf Vesturfaranna og afkomenda þeirra í Norður-Ameríku.
„Það er stórkostlegt að fá að upplifa Íslendingahátíðina hér í Vesturheimi. Tenging afkomenda Vesturfaranna við Ísland er mjög sterk og það hreyfir við manni að sjá hvernig þeir halda uppruna sínum á lofti. Það er skylda okkar Íslendinga að rækta þessi tengsl af alúð og alvöru,“ er haft eftir Lilju í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Í Gimli búa að staðaldri um 3.000 manns, en á Íslendingadeginum má búast við á milli 30-40.000 manns í bænum.
Í tengslum við Íslendingadaginn heimsótti ráðherra einnig fjölda staða á Íslendingaslóðunum í Manitoba. Má þar nefna Hvítastein (e. White Rock), menningarsafnið Nýja Ísland í Gimli, Víkingagarðinn og dvalarheimilið Betel en þar búa aldraðir afkomendur íslenskra Vesturfara sem sumir hverjir tala íslensku.
Samkvæmt Hagstofu Kanada gefa um 90 þúsund Kanadamenn uppruna sinn sem íslenskan.