Helmingur með yfir 5,3 milljónir á ári

Helmingur landsmanna fær 5,3 milljónir eða meira í heildartekjur á …
Helmingur landsmanna fær 5,3 milljónir eða meira í heildartekjur á ári. mbl.is/Golli

Heildartekjur einstaklinga á Íslandi í fyrra voru að meðaltali 6,6 milljónir, en það samsvarar um 553 þúsund krónum á mánuði. Miðgildi heildartekna var hins vegar 5,3 milljónir eða 441 þúsund krónur á mánuði. Þegar horft er til atvinnutekna var meðaltal þeirra sem voru með atvinnutekjur 505 þúsund krónur á mánuði, en miðgildi atvinnutekna var 447 þúsund.

Atvinnutekjur einstaklinga á aldrinum 25 til 74 ára voru að meðaltali 571 þúsund krónur, en eitt prósent einstaklinga á þessum aldri var með að jafnaði tæplega tvær milljónir eða meira í atvinnutekjur á mánuði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Byggja tölurnar á skattaframtölum einstaklinga frá 16 ára aldri.

Hæstu meðaltalstekjur á Seltjarnarnesi og í Garðabæ

Meðaltal heildartekna árið 2018 var hæst 8,5 milljónir króna á Seltjarnarnesi og 8,4 milljónir króna í Garðabæ, en það voru einu sveitarfélögin þar sem heildartekjur einstaklinga voru að meðaltali yfir 8 milljónir króna. Sé hins vegar horft til miðgildis voru heildartekjur nokkuð lægri eða rúmlega 6,2 milljónir króna í báðum sveitarfélögunum. Heildartekjur í Bolungarvík voru 7,6 milljónir króna að meðaltali árið 2018, 7,3 milljónir króna í Kjósahreppi og 7,2 milljónir króna í Kópavogi.

Í sjö sveitarfélögum var meðaltal heildartekna undir 5 milljónum króna árið 2018. Lægstar voru heildartekjur í Akrahreppi 4,3 milljónir króna og 4,4 milljónir króna í Húnavatnshreppi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert