Um fjörutíu aukavagnar frá Strætó tóku þátt í akstri í kringum tónleika Ed Sheeran á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Um klukkustund tók að tæma Laugardalinn.
Að sögn Guðmundar Heiðar Helgasonar, upplýsingafulltrúa Strætó, voru tónleikagestirnir sem nýttu sér þjónustu Strætó til fyrirmyndar og gengu ferðirnar á milli Kringlu og Laugardals eins og í sögu.
Aukavagnar voru settir inn í leiðarkerfi Strætó eftir þörfum þar sem álagið var mikið. Til dæmis safnaðist mikið fólk saman á biðstöðvum á Suðurlandsbraut og voru aukavagnar sendir þangað til að anna eftirspurninni.
Guðmundur bætir við að Strætó hafi átt í frábæru samstarfi við lögreglu, Reykjavíkurborg og tónleikahaldara.