Ferðamaðurinn sem talinn er hafa fallið í Þingvallavatn á laugardag, var að sögn belgíska vefmiðilsins HLN 41 árs Belgi að nafni Bjorn Debecker. Leit hefur staðið yfir að honum með hléum frá því á laugardag.
Segir miðillinn skilríki Debeckers, sem var verkfræðingur og tveggja barna faðir, hafa fundist í bakpoka hans. Fjölskylda hans hefur ekki heyrt frá honum frá því á laugardag og neitaði að tjá sig við HLN.
Er Debecker sagður hafa tjaldað norðan megin við Þingvallavatn og að hann hafi leitað upplýsinga hjá þjóðgarðsvörðum áður en hann hvarf.
HLN segir Debecker vera mikinn heimshornaflakkara. Hann hafi þannig tjaldað við jökul í Alaska, snorklað í Víetnam og farið í skíðaferðir í Ölpunum og franska Vosges fjallagarðinum. Debecker er þá sagður hafa heimsótt um 50 lönd, auk þess að hafa búið í Noregi um tíma.
Leit hefur staðið yfir með hléum frá því á laugardag, en Debecker er talinn hafa farið út á vatnið á kajak og fallið útbyrðis. Strekkingsvindur hefur verið á svæðinu og leitaraðstæður ekki góðar.
Mannlaus kajak og bakpoki fundust á floti á sunnanverðu vatninu við Villingavatn á laugardag. Hefur erlends ferðamanns verið leitað síðan úr „lofti, láði og legi og hefur leitin fram til þessa ekki borið árangur,“ að því er sagði í tilkynningu lögreglu.