Leit að belgískum ferðamanni á fimmtugsaldri, sem talið er líklegt að hafi fallið útbyrðis úr kajak á Þingvallavatni á laugardag, hefst aftur síðdegis í dag.
Sveinn Kr. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði í samtali við mbl.is að aðstæður til leitar væru ákjósanlegri en síðustu daga og er stefnt að því að leit hefjist að nýju á milli klukkan 17 og 18 í kvöld.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landbjargar, segir að björgunarsveitir muni aðstoða lögreglu við leitina. Verður mannsins leitað í gönguhópum og á bátum.
Þá munu kafarasveitir frá sérsveit ríkislögreglustjóra og Landsbjörg einnig taka þátt í leitinni. Óvíst er hvort það verði í dag eða á morgun, en það mun fara eftir aðstæðum þegar leit hefst í dag.
Lögregla leitaði mannsins um helgina eftir að mannlaus kajak og bakpoki fundust á floti á sunnanverðu vatninu, við Villingavatn, á laugardag. Var beðið með leit á mánudag og þriðjudag sökum veðurs og slæmra aðstæðna.
Segir lögregla „yfirgnæfandi líkur“ á að maðurinn hafi fallið útbyrðis, en strekkingsvindur hefur verið á svæðinu og aðstæður til siglinga ekki verið góðar.
Að sögn belgískra fjölmiðla er maðurinn hinn 41 árs gamli Bjorn Debecker, verkfræðingur og tveggja barna faðir.