Gróðureldar kviknuðu í mosa á Nesjavallaleið fyrir hádegi í dag. Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út en ekki var um stórt svæði að ræða.
„Eldur í mosa getur mallað í nokkurn tíma áður en hann tekur sig upp. Það getur því verið snúið að tryggja að ekki leynist glóð eða eldur í mosanum áður en vettvangur er yfirgefinn,“ segir í færslu Brunavarna Árnessýslu á Facebook.
Þar segir jafnframt að kjöraðstæður séu fyrir gróðurbruna í dag þar sem gróður og jarðvegur er töluvert þurr og þarf því ekki mikið til að kveikja eld í honum.
Fólk á svæðinu er beðið að fara varlega með eld og aðra hitagjafa nálægt gróðri, sem og að hafa augun opin og bregðist við ef það verður elds vart.