Lúxussnekkjan Scenic Eclipse liggur hér við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn.
Státar áhöfn skipsins af því að geta veitt gestum sínum, sem eru um 230 talsins, upplifun sem erfitt sé að nálgast annars staðar.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd lagði dökkan og mikinn reyk frá vélum skipsins er það lá við bryggju, með tilheyrandi loftmengun, en mengun frá skipum í höfnum landsins hefur mjög verið til umræðu að undanförnu.