Minni heyfengur samhliða þurrki

Heyskapur í Hrútafirði.
Heyskapur í Hrútafirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Þeir bændur sem Morgunblaðið ræddi við í gær segja heyskap í sveitum landsins almennt vera langt kominn.

Þurrkatíð ræður því að eftirtekja er um meðallag, en á Austurlandi hefur legið í súld og rosa megnið af sumrinu.

„Mér sýnist líka að þetta sé mjög gott og næringarríkt hey,“ segir Elvar Eyvindsson, bóndi á Skíðbakka í Austur-Landeyjum, í umfjöllun um heyskapinn í Morgunblaðinu í dag. Þá segir bóndi á Austurlandi grös þar orðin trénuð og væntanlega næringarlítil.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert