Formleg kveðjuathöfn á jöklinum Ok í Kaldadal í Borgarfirði í gær hefur vakið heimsathygli. Sumir fjölmiðlar, svo sem AP og BuzzFeed, tala jafnvel um jarðarför jökulsins á meðan aðrir segja sorgarástand ríkja á Íslandi. Athöfnin var vissulega kveðjuathöfn, þar sem Ok er fyrstur íslenskra jökla til að hverfa á tímum loftslagsbreytinga.
„Ísland kveður fyrsta jökulinn sem laut í lægra haldi fyrir loftslagsbreytingum“ og „Ísland syrgir horfinn jökul“ eru á meðal fyrirsagna fjölmiðla síðasta sólarhringinn.
Í umfjöllun AFP er vakin athygli á því að skömmu eftir að fregnir bárust af því að nýliðinn júlímánuður var heitasti mánuður á heimsvísu frá upphafi mælinga afhjúpa Íslendingar minningarskjöld um fyrsta jökulinn sem hverfur vegna loftslagsbreytinga.
„Ég vona að þessi athöfn veiti okkur hvatningu, ekki bara okkur Íslendingum heldur allri heimsbyggðinni, af því að það sem við sjáum hér er bara einn angi loftslagskrísunnar,“ hefur AFP eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Um eitt hundrað manns voru viðstödd kveðjuathöfnina í gær þar sem minningarskjöldur um Ok var afhjúpaður. Að honum standa Cymene Howe og Dominic Boyer, mannfræðingar og rannsóknafólk við Rice-háskóla í Texas í Bandaríkjunum. Oddur Sigurðsson jöklafræðingur kemur einnig að skildinum sem og Andri Snær Magnason sem er höfundur texta á minningarskildinum sem ber yfirskriftina Bréf til framtíðar.
Afhjúpun skjaldarins hefur svo sannarlega vakið heimsathygli undanfarið og beint augum að þeirri staðreynd að á Íslandi er jökulísinn að hverfa. Staðreyndin er sú, líkt og fram kemur í texta Andra Snæs, að búast má við að á næstu 200 árum fari allir jöklar sömu leið og Okjökull. Hvarf hans geti verið upphafið að öðru og meira.