Arnar Þór Ingólfsson
Fjármálaeftirlitið og Lífeyrissjóður verzlunarmanna fara fram á að máli stéttarfélagsins VR á hendur þeim verði vísað frá, en fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hádegi þar sem frávísunarkrafan var lögð fram.
Hún byggist á ýmsum lagatæknilegum atriðum, segir Arnar Þór Stefánsson lögmaður FME í málinu, meðal annars því að VR skorti lögvarða hagsmuni.
Stefna VR var lögð fram 26. júlí síðastliðinn, en málið snýst um þá ákvörðun fulltrúaráðs VR að afturkalla umboð stjórnarmanna sinna í Lífeyrissjóði verzlunamanna og skipa nýja.
FME leit svo á og gaf það álit til stjórnar lífeyrissjóðsins að stjórn sjóðsins eins og hún var tilkynnt til FME í mars sæti enn, þrátt fyrir að fulltrúaráð VR hefði dregið umboð fjögurra stjórnarmanna sem sjóðurinn skipar til baka.
Síðan málið var höfðað hefur stjórn VR staðfest nýja bráðabirgðafulltrúa sína í stjórn lífeyrissjóðsins.
Með því, sagði Ragnar Þór í viðtali við mbl.is á dögunum, var brugðist við því sem Fjármálaeftirlitið hefði gefið í skyn í áliti sínu, að eingöngu stjórn VR en ekki fulltrúaráð VR gæti skipað í stjórnina.