Stefna Seðlabanka Íslands á hendur Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Bankinn stefnir Ara til að fá felldan úr gildi úrskurð úrskurðarnefndar upplýsingamála þess efnis að bankanum beri að veita Ara umbeðnar upplýsingar um námsstyrk til Ingibjargar Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans. Aðalmeðferð verður í Héraðsdómi Reykjaness föstudaginn 4. október klukkan 9:15.
Í stað þess að una úrskurði nefndarinnar fór bankinn fram á það við úrskurðarnefndina að réttaráhrifum yrði frestað á meðan málið yrði borið undir dómstóla, og varð nefndin við því. Segir enda í rökstuðningi úrskurðarnefndar fyrir því að fallast á frestunina að „úrskurðurinn „[styðjist] ekki við skýr fordæmi dómstóla eða rótgróna úrskurðarframkvæmd nefndarinnar sjálfrar“.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum, sem gefin var út er stefnan var birt, segir að hún beinist ekki gegn blaðamanni, heldur sé markmiðið einfaldlega að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt. Því muni bankinn ekki krefja Ara um greiðslu málskostnaðar þótt málið vinnist.
Samningurinn við Ingibjörgu var gerður í tíð Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, en hann gaf ekki kost á viðtali er mbl.is falaðist eftir því fyrr í mánuðinum. Már lét af embætti seðlabankastjóra á þriðjudag og við tók Ásgeir Jónsson. Á blaðamannafundi á þriðjudag var Ásgeir spurður út í málið, en sagðist ekki hafa gefist tími til að setja sig nægilega inn í það til að geta svarað spurningum fjölmiðla, enda fyrsti vinnudagur nýhafinn.
Í nóvember í fyrra sendi Ari, sem þá var fréttastjóri DV, fyrirspurn á bankann þar sem óskað var eftir upplýsingum um tilhögun námsleyfis Ingibjargar árin 2016-2017 er hún sótti MPA-nám í Bandaríkjunum, en að námi loknu sneri Ingibjörg ekki aftur til starfa hjá bankanum.
Seðlabankinn neitaði að svara fyrirspurninni og kærði Ari bankann því til upplýsinganefndar um upplýsingamál, sem úrskurðaði honum í vil í síðasta mánuði. „Bankinn bar fyrir sig að málefni bankans sjálfs eigi ekki erindi við almenning, sem heldur náttúrulega ekki vatni,“ sagði Ari í samtali við mbl.is er stefnan var birt honum fyrr í mánuðinum.