Ekki sér enn fyrir endann á viðræðum ríkisins og viðsemjenda þess í stéttarfélögunum um endurnýjun kjarasamninga.
Mikil vinna og fundahöld hafa verið í gangi að undanförnu og halda áfram næstu daga. Stór hluti viðræðnanna snýst um breytingar á vinnutíma en þær eru afar flóknar.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar ríkisins (SNR), viðræðurnar ganga vel fyrir sig. Nefndin er með á sjöunda tug viðsemjenda og eru samningar þeirra allra lausir.