Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir að framleiða átta og hálft kíló af amfetamíni í Borgarfirði. Tveir mannanna hlutu þunga dóma í Pólstjörnumálinu svokallaða.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Ásamt þremur til viðbótar eru mennirnir einnig ákærðir fyrir stórfellda kannabisrækt í Þykkvabæ.
Ákæra var gefin út í fyrradag. Gerð er krafa um upptöku á ókjörum af tækjum og tólum sem notuð voru við ræktunina og amfetamínframleiðsluna.