Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna og varaforsetafrúin Karen Pence lentu hér á landi í hádeginu. Þau virtust létt í lund þegar þau lentu á Keflavíkurflugvelli og brostu sínu breiðasta þegar þau stigu úr flugvélinni.
Fjölmiðlafólk og ljósmyndarar hafa fylgt þeim hvert fótmál og mikill viðbúnaður er hjá lögreglu og sérsveit líkt og meðfylgjandi myndasyrpa sýnir.
Varaforsetahjónin ferðuðust líkt og hefð er fyrir með Air Force 2, einkaflugvél embættis varaforetans.
mbl.is/Hari
Mikill viðbúnaður var til að mynda við Höfða þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú tóku á móti Pence-hjónunum. Pence þakkaði þeim fyrir hlýjar móttökur en þetta er í fyrsta sinn sem þau hjónin koma til landsins.
George Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar bíður hér Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna og Karen konu hans velkomin til landsins.
mbl.is/Hari
Varaforsetinn hefur í dag einnig setið viðskiptaþing íslensks og bandarísks viðskiptafólks og hóf Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þingið með því að bjóða Pence velkominn til landsins. „Þetta er sögulegur viðburður,“ sagði Guðlaugur Þór.
Það var löng bílalest sem hélt með varaforsetann frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
mbl.is/Hari
Starfsfólk Arion banka í Borgartúni fylgist grannt með komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna í Höfða.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mikill viðbúnaður var við Höfða og fylgdust vopnaðir sérsveitarmenn með umhverfinu af húsþaki í nágrenninu.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Þyrlu var einnig flogið yfir í nágrenni Höfða til að fylgjast með umhverfinu.
mbl.is/Árni Sæberg
Karen Pence, varaforsetafrú Bandaríkjanna, og Eliza Reed forsetafrú Íslands. Regnbogalitt armband sem íslenska forsetafrúin ber á fundinum hefur vakið athygli margra.
mbl.is/Hari
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna. Armband frá Krafti, styrktarfélags ungs fólks með krabbameins, sem Guðni er með á hendinni hefur vakið nokkra athygli.
mbl.is/Hari
Fjöldi félagasamtaka, þar á meðal Samtökin '78, hafa boðað til mótmæla vegna heimsóknar Pence.
Ljósmynd/Efling
Hin bandaríska Karen Pease mætti bikiníklædd að höfða með páfagauk til að mótmæla stefnu bandarískra stjórnvalda.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Að loknum fundi þeirra Pence og Guðna tók við viðskiptaþing íslensks og bandarísks viðskiptafólks. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hóf þingið með því að bjóða Pence velkominn til landsins.
mbl.is/Hari