Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er tekin við lyklunum að dómsmálaráðuneytinu af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti á fundi sínum í gær að Áslaug Arna yrði nýr dómsmálaráðherra, en Þórdís Kolbrún hefur sinnt embættinu síðan Sigríður Á. Andersen sagði af sér í vor.