Lækkun tekjuskatts einstaklinga flýtt

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020. mbl.is/Árni Sæberg

Meðal þess sem fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2020, sem kynnt var í dag, felur í sér er að tekjuskattur einstaklinga verður lækkaður hraðar en áður stóð til að því er segir í fréttatilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þannig er gert ráð fyrir að lækkunin komi að fullu fram árið 2021 í stað 2022.

„Við þessa aðgerð hækka ráðstöfunartekjur þeirra tekjulægstu um rúmlega 120 þúsund krónur á ári. Er heildarumfang hennar á ári um 21 ma.kr. sem samsvarar um 10% af tekjum ríkisins af tekjuskatti einstaklinga. Er þetta mikilvægur liður í því að styðja við heimilin þegar hægir á í atvinnulífinu,“ segir enn fremur.

Þá kemur til framkvæmdar seinni hluti 0,5 prósentustiga lækkunar tryggingagjalds, en gjaldið var áður lækkað um 0,25 prósentustig í upphafi árs 2019. Það þýði að um áramótin hafi tryggingagjald verið lækkað frá árinu 2013 úr 7,69% í 6,35%.

Aðgerðir til að auka nýliðun kennara

„Tryggður er framgangur margra góðra mála. Þannig má nefna að breytingar á LÍN eru fjármagnaðar, ráðist verður í aðgerðir til auka nýliðun kennara og efla starfsnám og framlög til vísinda- og rannsóknasamstarfs verða aukin.“

Enn fremur segir að framundan sé stórsókn í vegamálum og stefnt að kostnaðarþátttöku í flugfargjöldum innanlands fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Orkuskipti verði styrkt með skattaívilnunum og styrkjum úr Orkusjóði. Framlög til loftslagslagsmála hækki og renni meðal annars til bindingar kolefnis með skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis, en einnig verði framlög til landvörslu og miðhálendisþjóðgarðs aukin.

Þá segir að undirbúnar verði aðgerðir sem miði að því að bæta mönnun í hjúkrun, áfram verði unnið að eflingu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar og uppbyggingu hjúkrunarrýma. Sömuleiðis verði unnið að því að auka gæði í þjónustu við fötluð börn og foreldra þeirra og framlög aukin í samræmi við fyrri áform til að bæta kjör öryrkja.

Heildarafkoman í jafnvægi á næsta ári

Stuðlað verður einnig að atvinnuþátttöku aldraðra, réttur foreldra til fæðingarorlofs lengdur og framlög til barnabóta aukin. Þá verða framlög tryggð til húsnæðismála í tengslum við nýlega lífskjarasamninga og boðaðar eru aðgerðir til að bregðast við húsnæðisvanda á landsbyggðinni.

„Gert er ráð fyrir að heildarafkoma ríkissjóðs verði í jafnvægi árið 2020, sem er í samræmi við nýlega endurskoðun á fjármálastefnu til fimm ára, þótt dregið verði úr áður fyrirhuguðum afgangi af rekstri ríkissjóðs. Er þetta gert til þess að skapa skilyrði fyrir hagkerfið til að leita fyrr jafnvægis og fá fótfestu fyrir nýtt hagvaxtarskeið, með það að leiðarljósi að stuðla að stöðugleika og bættum lífskjörum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert