Áform um að stefna björgunarsveitum út á Langanes í nótt á háflóði til að freista þess að bjarga þeim grindhvölum sem enn voru á lífi hafa verið afturkölluð, samkvæmt upplýsingum fréttaritara mbl.is á Þórshöfn.
Er ástæða þess að litlar líkur eru á að aðgerðir hefðu skilað árangri og efamál hvort einhver dýranna myndu lifa til morguns.
Alls er um 62 grindhvali að ræða og var aðeins rúmlega tugur þeirra enn á lífi klukkan níu í kvöld. Göngufólk kom auga á grindhvalina síðdegis í dag og gerði viðbragðsaðilum viðvart.