Embætti ríkislögreglustjóra furðar sig á yfirlýsingu frá landssambandi lögreglumanna sem birst hefur í fjölmiðlum í dag, en stjórn Landssambands lögreglumanna sagði í ályktun að ákvörðun dómsmálaráðuneytis um að fara fram á alhliða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra væri orðin löngu tímabær.
„Um langt skeið hefur ríkt mikil óánægja meðal lögreglumanna með störf yfirstjórnar embættis ríkislögreglustjóra,“ segir í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér.
Fram kemur í athugasemd frá ríkislögreglustjóra, að stjórn landssambandsins hafi ekki haft neitt samband við embætti ríkislögreglustjóra til að ræða áhyggjur sem hún kveðst hafa af stöðu mála né sett fram nokkur umkvörtunarefni.
„Landssamband lögreglumanna á fulltrúa bæði í fata- og búnaðarnefnd og bílanefnd embættisins og hefur formaðurinn meðal annarra sjálfur setið í þeim. Fulltrúi landssambandsins hefur unnið með embættinu að útboði á einkennisfatnaði fyrir lögreglumenn sem birtast mun innan skamms.
Þegar liggur fyrir að bílamiðstöð verður lögð niður og mikilvægt er að nýtt fyrirkomulag tryggi að áfram verði keypt traust og öflug lögregluökutæki,“ segir í athugasemd ríkislögreglustjóra.
„Ríkislögreglustjóri hafði sjálfur frumkvæði að því að óska eftir því við ríkisendurskoðanda að fram færi úttekt á bílamiðstöð og áhrifum þeirra breytinga sem ný lög um opinber fjárlög hafa haft á reksturinn.
Ríkislögreglustjóri telur að tímabært sé að hugað verði að framtíðarskipan lögreglu og skynsamlegt væri að stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðanda myndi beinast að heildarendurskoðun lögreglumála í landinu,“ segir ennfremur.