Vilja alhliða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra

Lögreglumaður að störfum.
Lögreglumaður að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Landssambands lögreglumanna telur ákvörðun dómsmálaráðuneytis um að fara fram á alhliða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra löngu tímabæra. „Um langt skeið hefur ríkt mikil óánægja meðal lögreglumanna með störf yfirstjórnar embættis ríkislögreglustjóra,“ segir í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér.

Fram kemur að óánægjan sé m.a. til komin vegna fatamála lögreglumanna sem hafi verið í ólestri en einnig vegna annarra mála, s.s. bílamála. 

„Ljóst er að lögregluembætti hafa þurft að greiða háar fjárhæðir til bílamiðstöðvar ríkislögreglustjóra vegna ökutækja lögreglu, þrátt fyrir að þau séu jafnvel úr sér gengin, sbr. fréttir undanfarna daga. Einnig hafa málefni sérsveitar ríkislögreglustjóra verið til umfjöllunar og styður stjórn Landssambands lögreglumanna erindi þeirra sérsveitarmanna sem sent var dómsmálaráðaneyti til umfjöllunar,“ segir í ályktun stjórnarinnar. 

Ennfremur kemur fram, að stjórn Landssambands lögreglumanna telji að fái sá ágreiningur og sú gagnrýni sem beinst hafi að embætti ríkislögreglustjóra ekki skjóta úrlausn muni það bitna á þjónustu við borgarana, öryggi þeirra og öryggi lögreglumanna á landsvísu.

„Slíkt ástand er til þess fallið að rýra traust almennings til lögreglu, sem lengi hefur haldist gott og dapurt væri að glata,“ segir stjórnin jafnframt í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert