Boðsund Marglyttanna yfir Ermasundið gengur vel að sögn Soffíu Sigurgeirsdóttur skipuleggjanda. „Það gengur bara vel,“ segir hún en Marglytturnar lögðu af stað frá Dover um sexleytið í morgun og hafa nú verið á sundi í rúma fimm tíma.
„Nú er stutt í að Brynhildur Ólafs, sem lagði síðast af stað, klári. Þá eru allar búnar að synda einu sinni,“ segir Soffía og kveður þær eiga næga orku eftir.
„Þær eru að spila tónlist á bátnum og hlæja bara og skemmta sér,“ segir hún og kveður jákvætt og gott viðmið að engin þeirra sé búin að æla. „Það er þó einhver velgja. Þórey Vilhjálmsdóttir var einmitt að koma upp úr og henni var smá flökurt.“ Soffía bætir við að Marglytturnar séu þó allar vel útbúnar með sjóveikiplástrum.
„Núna eru þær komnar vel út á Ermarsundið og þar er bara spegilsléttur sjór. Það hjálpar gríðarlega að þær þurfi ekki að berjast öldurnar.“ Hópurinn hafði þurft að fresta sundi sínu um helgina sökum óhagstæðra vinda og mikils öldugangs.
Soffía segir þó alltaf undirliggjandi strauma á stöðum sem þessum og þá sé skipatraffíkin mikil og þeim fylgi líka öldur. „Þetta eru risastór flutningaskip sem þær eru að synda með allt í kringum sig, enda er þetta ein fjölfarnasta siglingaleið í Evrópu.“ Soffía bætir við að olía og leki frá skipunum setji þá líka svip á sjóinn.
„Síðan er mjög stór olíuflekkur á Ermarsundinu sem þær þurfa að synda í gegnum og það verður áskorun.“ Til að takast á við olíuna setja Marglytturnar Tiger Balm við vitin til að hreinsa skynfærin, enda olían „andstyggileg“ að sögn Soffíu. Þá eru þær með hreinsiklúta, tyggjó og taílensk jurtalyf til að taka á olíunni.
Marglytturnar eru líkt og áður segir nú búnar að synda í fimm tíma og fara því að nálgast þriðjung leiðarinnar. „Þetta eru 16-18 tímar sem við horfum til,“ segir Soffía og kveður þær vera örlítið á eftir áætlun. „Mér sýnist þetta þó vera nokkuð gott,“ bætir hún við. „Þær eiga nóga orku inni og njóta sín.“
Marglyttur vilja sporna gegn plastmengun í hafi og eru að safna áheitum fyrir Bláa herinn. Markmiðið með sundferðinni er að vekja athygli á áhrifum plastmengunar á lífríki sjávar og mikilvægi þess að vernda auðlindir hafsins en ástand lífríkis í Ermarsundinu er mjög slæmt.
Hægt er að heita á Bláa herinn í gegnum AUR-appið í síma 788-9966, einnig er hægt að leggja inn fjárhæð á reikning 0537-14-650972, kt. 250766-5219. Hægt er að fylgjast með sundi Marglyttanna á Facebook.