Framlög aukast til íslenskra háskóla

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/​Hari

Framlög á hvern ársnema í íslenskum háskólum voru rétt undir meðaltali OECD árið 2016, eða um 94% af meðaltali OECD. Árið 2015 námu þau 81% af meðaltali OECD og hækkuðu því um 13 prósentustig milli áranna 2015-16.

Þetta er kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og vitnað er í árlega skýrslu OECD um menntatölfræði, Education at a Glance. 

Þar kemur fram að framlög á hvern ársnema í háskólum hækkuðu meira á Íslandi en í meirihluta ríkja OECD ef miðað er við þróunina frá árinu 2010. Frá 2010 til 2016 hækkuðu framlögin um 43% á Íslandi en að meðaltali um 8% í ríkjum OECD.

Hlutfall háskólamenntaðra á aldrinum 25-34 ára hér á landi hefur aukist hratt á undanförnum áratug, úr 33% árið 2008 í 47% árið 2018, sem er yfir meðaltali OECD. Menntunarstig þessa aldurshóps er svipað og í Noregi og Svíþjóð. Mun hærra hlutfall kvenna hefur lokið háskólaprófi í þessum aldurshópi eða 56% en hlutfallið hjá körlum er 39%.

Þá hefur hlutfall fólks á aldrinum 25-34 ára sem ekki hefur lokið framhaldsskólaprófi á Íslandi farið lækkandi. Það var 18% í fyrra og hefur lækkað um níu prósentustig á tíu árum. Atvinnuþátttaka fólks á þessum aldri án framhaldsskólaprófs á Íslandi er mjög mikil í samanburði við önnur ríki, 80% þeirra eru í vinnu hér á landi en aðeins 60% að jafnaði innan OECD.

Laun kennara við upphaf starfsferilsins eru að jafnaði hærri á Íslandi en að meðaltali í OECD-ríkjum en hækka minna með meiri starfsreynslu. Laun grunnskólakennara voru 16% hærri á Íslandi en að jafnaði innan OECD árið 2018, en eftir 15 ára starfsreynslu hækka byrjunarlaunin um 10,5% á Íslandi en innan OECD um 39%. Þá eru launin á Íslandi orðin 9% lægri en að jafnaði innan OECD.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert