Harpa Ólafsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu kjaramála hjá Reykjavíkurborg, segir í samtali í Morgunblaðinu í dag að allir aðilar í kjaraviðræðum vilji finna leiðir til að stytta vinnuvikuna, en að útfærslan sé flókin.
Þá sé ekki hægt að yfirfæra tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar á alla starfsmenn.
Harpa segir að borgin hafi þegar lagt fram tilboð sem feli í sér styttingu vinnuvikunnar um þrjár klukkustundir á viku. Ýmislegt þurfi hins vegar að taka með í reikninginn við útfærslu þess.