Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem var að beina byssu út um glugga bifreiðar sem hann var farþegi í á Miklubraut. Beindi hann byssunni að umferð sem var samsíða.
Lögreglumaður, sem var þó ekki á vakt, veitti þessu athygli og tilkynnti lögreglu rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi.
Bifreiðinni var ekið í átt að Breiðholti síðan út á Reykjanesbraut aftur þar sem lögregla hafði afskipti af ökumanni og farþega. Þarna voru á ferðinni tveir ungir menn, 17 og 18 ára, sem höfðu verið að leika sér með leikfangabyssu.
Mennirnir voru færðir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim með aðkomu foreldra og Barnaverndar. Þá var lagt hald á byssuna.