Átta sóttu um embætti hæstaréttardómara

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Hallur Már

Átta sóttu um embætti dómara við Hæstarétt Íslands, en eitt embætti var laust til umsóknar samkvæmt auglýsingu frá 6. september, en þeir Markús Sig­ur­björns­son og Viðar Már Matth­ías­son munu láta af störf­um 1. októ­ber. Fimm umsækjendanna eru dómarar við Landsrétt.

Umsóknarfrestur rann út í gær og skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum, að því er fram kemur á vef dómsmálaráðuneytisins. 

Umsækjendur um embættið eru: 

1. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands

2. Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt

3. Ása Ólafsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands

4. Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt

5. Guðni Á. Haraldsson, lögmaður

6. Ingveldur Einarsdóttir, dómari við Landsrétt

7. Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt

8. Sigurður Tómas Magnússon, dómari við Landsrétt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert