Slitnaði upp úr kjaraviðræðum BSRB og ríkisins

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Ljósmynd/BSRB

Formaður BSRB hefur boðað samningseiningu bandalagsins til fundar á morgun eftir að það slitnaði upp úr kjaraviðræðum BSRB við ríkið á fundi í dag. Á fundinum á morgun verður lögð fram tillaga þess efnis að kjaradeilunni verði vísað til ríkissáttasemjara.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BSBR.

„Viðræður okkar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og við munum því gera  þá tillögu á fundi samningseininga BSRB á morgun að deilunni verði vísað til ríkissáttasemjara,“ er haft eftir Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formanni BSBR, í tilkynningunni.

Tillaga fulltrúa ríkisins algjörlega óaðgengileg

Á fundinum í dag lögðu fulltrúar ríkisins fram tillögu að lausn deilunnar sem BSRB telur „algjörlega óaðgengilega.“

„Tilboð ríkisins var í raun það sama og samninganefndin lagði upp með við upphaf kjaraviðræðna í vor. Formaður samninganefndarinnar gerði okkur endanlega ljóst á fundinum að nefndin hefði ekki umboð til að ganga lengra,“ segir Sonja.

Helst er deilt um kröfu BSBR um styttingu vinnuvikunnar í 35 klukkustundir án kjaraskerðingar, með meiri styttingu fyrir vaktavinnufólk. Í tilboði ríkisins var áfram miðað við 40 klukkustunda vinnuviku en opnað á möguleikann að samið yrði um að stytta vinnuvikuna á einstökum vinnustöðum með því að sleppa kaffitímum.

Munu undirbúa aðgerðir til að undirstrika kröfur ef þess þarf

„Þetta er algjörlega óásættanlegt tilboð og sýnir að ríkið hefur ekki verið í kjarasamningsviðræðum af heilum hug. Við höfum nú látið reyna á samningsvilja ríkisins svo mánuðum skiptir en nú þurfum við að ræða hvort kominn sé tími á að ríkissáttasemjari taki við verkstjórninni,“ segir Sonja jafnframt og bætir við:

„Það er miður ef það gengur ekki að semja öðruvísi en undir hótunum, en ef við þurfum að undirbúa aðgerðir til að undirstrika okkar kröfur þá munum við gera það.“

Fréttin var uppfærð klukkan 16.47.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert