„Mikil óþreyja og óánægja“ innan aðildarfélaga BSRB

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að það þurfi að …
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að það þurfi að fara að „setja í gang“ ef það á að nást að semja fyrir sumarleyfi. mbl.is/​Hari

„Við gerðum okkur grein fyrir því að það yrði flókið viðfangsefni að nálgast styttingu vinnuvikunnar en við áttum ekki von á öðru en það yrði byggt á jákvæðum niðurstöðum tilraunaverkefnisins með ríkinu. En við erum að sjá núna að það er ekki nálgun þeirra,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í samtali við mbl.is.

Það slitnaði upp úr kjarasamningsviðræðum BSRB og ríkisins í gær og boðaði Sonja í kjölfarið samningseiningu bandalagsins til fundar klukkan tvö í dag til þess að ræða hvort  kjaradeilunni yrði vísað til ríkissáttasemjara. Spurð hvort að hún teldi að aðildarfélögin mundu samþykkja það segir Sonja:

„Ég á ekki von á öðru, það er mikil óþreyja og óánægja, hjá félagsmönnum aðildarfélaga okkar yfir því hversu hægt þetta gengur. Kjarasamningar hafa verið lausir frá 1. apríl.“

Helsta þrætuepli BSRB og ríkisins er stytting vinnuvikunnar en krafa BSRB er að hún verði stytt í 35 klukkustundir. Í tilboði ríkisins sem lagt var fram í gær var áfram miðað við 40 klukkustunda vinnuviku en opnað á möguleikann að samið yrði um að stytta vinnuvikuna á einstökum vinnustöðum með því að sleppa kaffitímum.

„Þetta er al­gjör­lega óá­sætt­an­legt til­boð og sýn­ir að ríkið hef­ur ekki verið í kjara­samn­ingsviðræðum af heil­um hug. Við höf­um nú látið reyna á samn­ings­vilja rík­is­ins svo mánuðum skipt­ir en nú þurf­um við að ræða hvort kom­inn sé tími á að rík­is­sátta­semj­ari taki við verk­stjórn­inni,“ sagði Sonja í yfirlýsingu í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka