Ferðamálin farin að nálgast þolmörk

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á fundinum …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á fundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég er ótrúlega stolt af þessu verkefni, ég er stolt af að hafa sett það af stað, ég er stolt af öllu þessu fólki sem er búið að gefa sig allt í þetta verkefni,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar,- og nýsköpunarráðherra, á fundi á Nordica hóteli í dag þar sem kynnt var verkefnið jafnvægisás ferðamála.

Fram kemur í fréttatilkynningu að jafnvægisásinn sé nýtt, viðamikið og mikilvægt stjórntæki sem segir til um það hvar ferðaþjónustan standi gagnvart yfir 60 mælikvörðum sjálfbærrar nýtingar þar sem horft er til samfélagslegra, efnahagslegra og umhverfislegra þátta, en þetta mun vera í fyrsta sinn í heiminum sem slíkt verkefni er unnið á landsvísu.

Mælikvarðarnir spanna allt frá ástandi náttúrunnar og ánægju heimamanna til framboðs á heimagistingu og ástands vegakerfisins. Meginniðurstaðan er að núverandi ástand sé á heildina litið farið að nálgast þolmörk og að óbreyttu sé hægt að þola tveggja prósenta árlegan vöxt til ársins 2030 en komið yfir þolmörk 2030 við fimm prósenta.

„Við ætlum að vera leiðandi í sjálfbærri þróun“

Verkefnið var unnið í samstarfi ráðuneytis ferðamála, Samtaka ferðaþjónustunnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hafa verið sett niður markmið um að árið 2030 verði heildarútgjöld ferðamanna 700 milljarðar króna, yfir 90% landsmanna verði jákvæð í garð ferðaþjónustu, meðmælaskor erlendra ferðamanna verði hærra en 75 og virkri álagsstýringu hafi verið komið á til að styðja við framtíðarsýnina.

„Við ætlum að vera leiðandi í sjálfbærri þróun. Við ætlum að hafa samkeppnishæfni að leiðarljósi og starfa í sátt við land og þjóð. Við ætlum að setja arðsemi framar fjölda ferðamanna, vinna að ávinningi heimamanna um allt land, gæta jafnvægis milli verndar og nýtingar og miða að einstakri upplifun, gæðum og fagmennsku,“ sagði ráðherrann.

„Það er mikilvægur áfangi að allir helstu hagsmunaaðilar séu sammála um þessa framtíðarsýn og  þessi leiðarljós. Og Jafnvægisásinn tryggir að við munum beina kröftum okkar í rétta átt til að ná settu marki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert