Gengið var í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins í Elliðaárdalnum í gærkvöldi, en hann verður haldinn hátíðlegur á morgun, sunnudag.
Gengu þátttakendur um fjóra kílómetra en þátttaka var ókeypis. Í dag verður svo haldið sérstakt hjartadagshlaup, en boðið er upp á 5 og 10 km vegalengdir.
Ræst verður frá Kópavogsvelli og munu þátttakendur hlaupa um Kársnesið til stuðnings bættri hjartaheilsu. Hlaupið hefst klukkan tíu. Frjálsíþróttadeild Breiðabliks sér um framkvæmd hlaupsins.