Ragnheiður Friðriksdóttir var á gangi á Patterson-svæðinu, gömlu æfingasvæði bandaríska hersins, í blíðviðrinu á sunnudag þegar hún steig ofan á eitthvað óvenjulegt. „Ég fattaði um leið að þetta var ekki steinn,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Hún kallaði á eiginmann sinn, Hörð Björn Sigurjónsson, sem var með henni í göngunni ásamt frænda hennar, Ingvari Vilhjálmssyni, og voru þau fljót að átta sig á að þarna var um að ræða handsprengju. Hjónin eru mikið áhugafólk um „gamalt herdót“ eins og Ragnheiður orðar það og Hörður var fljótur að átta sig á að líklega væri sprengjan virk.
Ragnheiður segir sjokkið hafa verið talsvert en að hún hafi ekki gert sér grein fyrir að miklu verr hefði getað farið fyrr en lögreglumaður benti henni á það. „Hann sagði að ég hafi verið heppin að hún hafi ekki sprungið þegar ég steig ofan á hana. Ég nötraði og var hálfhrædd á leiðinni heim,“ segir hún.
Atvikið átti sér stað síðdegis á sunnudag og tilkynntu þau fundinn til Neyðarlínu. Lögregla hafði samband við sprengjusérfræðinga og mættu starfsmenn Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis og eyddu sprengjunni um tveimur tímum seinna. Myndskeið af því þegar sprengjan er gerð óvirk má sjá efst í fréttinni.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var sprengjan á þekktu sprengjuæfingasvæði gamla varnarliðsins. Talið er að handsprengjan hafi verið í jörðu og komið upp á yfirborðið í jarðvegslyftingum. Vel gekk að eyða sprengjunni.
Ragnheiður, Hörður og Ingvar fylgdust grannt með aðgerðum sprengjusérfræðinganna. „Það voru allir mjög rólegir, þetta voru tveir menn frá Landhelgisgæslunni sem græjuðu þetta bara.“
Handsprengjufundurinn mun ekki aftra hjónunum í að leggja í frekari gönguferðir um svæðið. „Ó nei, maðurinn minn hefur mikinn áhuga á þessu og smitaði mig. Svo vann mamma uppi á velli þegar ég var yngri,“ segir Ragnheiður, sem er hálfur Keflvíkingur, en þau hjónin eru búsett í Reykjavík og munu halda áfram að venja komur sínar á gamla hersvæðið.
Margoft hefur verið leitað á svæðinu og það hreinsað en endrum og sinnum finnast þar sprengjur á borð við þessa sem koma upp á yfirborðið, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Landhelgisgæslan leggur því áherslu á að fólk gæti varúðar á svæðinu. Leiki grunur á að um sprengju sé að ræða er mikilvægt að láta lögreglu vita.