Norðurljósamiðstöðin Aurora Basecamp opnar dyr sínar fyrir gestum í fyrsta sinn kvöld, í gamalli hraunnámu nærri gatnamótum Krísuvíkurvegar og Bláfjallavegar. Kormákur Hermannson, einn hvatamanna að verkefninu, segir í samtali við mbl.is að nú sé loks orðið gaman að segja frá því.
„Til að byrja með ætlum við að hafa þetta opið á kvöldin frá 18-24,“ segir Kormákur, en eins og mbl.is greindi frá fyrr í sumar verður gestum Aurora Basecamp veitt ýmis fræðsla um norðurljós, leiðbeiningar um hvernig þau skuli finna og einnig er á staðnum salernisaðstaða og skjól til þess að virða norðurljósin fyrir sér innandyra.
Ef norðurljósin skortir á himninum, þá er hægt að sjá „norðurljósalíki“ í ílöngum glertúpum sem fyrirtækið hefur látið framleiða. Hugmyndin er að staðurinn verði áningarstaður fyrir ferðamenn í leit að norðurljósum, bæði þeirra sem eru á eigin vegum og einnig þeirra sem fara í skipulagðar ferðir.
Kormákur sagði við mbl.is í sumar að það væru um það bil tvö ár síðan fyrirtækið fór að huga að því að setja upp norðurljósamiðstöð.
Hugmyndin kom upp eftir að ljóst var að þeir ferðamenn sem áður keyptu norðurljósaferðir af fyrirtækinu, Basecamp, væru farnir að fara í auknum mæli í norðurljósaferðir á eigin bílaleigubíl.