„Það er mjög oft sem áskoranir haustsins. Skóli, ný vinna, menn að koma úr sumarleyfum sem gerir það að verkum að fólk með ADHD er meira meðvitað um að taka á sínum málum,“ segir Hrannar Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna en geðheilbrigði og andlegar áskoranir voru í fókus í HR í dag.
Fjölmargir aðilar voru í skólanum í dag og kynntu úrræði sem eru í boði fyrir fólk. mbl.is kom við í HR þar sem fulltrúar frá aðilum á borð við ADHD samtökin, átröskunarteymi Landspítalans, Bataskóla Íslands, Berginu, Bjarkarhlíð, Drekaslóð, Hugarafli, Hugrúnu, Pieta, Rauði krossinum, Rótinni, Samtökunum 78, Sorgarmiðstöðinni, Vinum í bata, Krafti, Ég á bara eitt líf og Litlu kvíðameðferðastöðinni ræddu við gesti og gangandi.
Í myndskeiðinu er rætt við Hrannar ásamt fulltrúum átröskunarteymisins og Hugrúnar geðfræðslufélags en mikil ánægja var með viðburðinn sem var sóttur af nemum úr skólanum en einnig almenningi.