Á morgun verður tekist á um hæfi sérhæfðs meðdómara í Landsrétti í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis. Saksóknari málsins fer fram á að meðdómarinn, Hreggviður Ingason, víki sæti í málinu, en hann vann fyrir slitastjórn Glitnis og í því ljósi telur saksóknari ekki tækt að hann dæmi í málinu í Landsrétti.
Í málinu voru fimm fyrrverandi starfsmenn Glitnis fundnir sekir í héraðsdómi um markaðsmisnotkun. Dómurinn féll í mars í fyrra og var Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, ekki gerð refsing þar sem hann hafði þegar hlotið refsihámark vegna sambærilegra brota. Þá var Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, dæmdur í 12 mánaða fangelsi, en hann hafði áður hlotið 5 ára fangelsi í öðrum hrunmálum.
Þrír starfsmenn eigin viðskipta bankans, Jónas Guðmundsson, Valgarð Már Valgarðsson og Pétur Jónasson, voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi. Jónas 12 mánuði, Valgarð 9 mánuði og Pétur 6 mánuði.
Aðeins þeir Jóhannes og Pétur áfrýjuðu málinu til Landsréttar en aðrir undu dómnum. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð málsins fari fram 8. nóvember.