Landsréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms frá því í október í fyrra um að hótelkeðjunni Centerhotels beri að greiða fasteignafélaginu Reitum rúmlega 200 milljónir vegna framkvæmda þegar húsnæði við Aðalstræti 6-8 var gert upp. Eitt hótel keðjunnar, Centerhotel plaza, er þar staðsett.
Centerhotels rekur fjölmörg hótel í miðbæ Reykjavíkur og hafði um langt árabil leigt húsnæðið í Aðalstræti af Reitum og áður af Landic Iceland. Á þeim tíma hafði verið farið í ýmsar framkvæmdir og var þá kveðið á um í samningi að Reitir myndu greiða fyrir framkvæmdir, en Centerhotels myndu greiða þá upphæð til baka samhliða leigugreiðslum. Færi keðjan úr húsnæðinu þyrfti að greiða það sem upp á vantaði.
Árið 2016 nýtti keðjan sér forkaupsrétt og keypti húsnæðið fyrir 2,5 milljarða. Þá stóð út af rúmlega 200 milljóna framkvæmdakostnaður. Taldi Centerhotels að þar sem ekki væri tilgreint sérstaklega hvað yrði um eftirstöðvarnar ef keðjan myndi kaupa húsið bæri því ekki að greiða upphæðina.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að það hafi verið skilningur beggja aðila að framkvæmdirnar væru hótelkeðjunni til hagsbóta og að frumkvæði hennar. Fellst dómurinn á túlkun Reita og segir að „önnur túlkun á þessu ákvæði væri bersýnilega ósanngjörn og óhæfilega íþyngjandi fyrir stefnanda“.
Landsréttur staðfesti sem fyrr segir dóm héraðsdóms og dæmdi Centerhotels til að greiða rúmlega 204 milljónir auk dráttarvaxta til Reita. Þá þarf Centerhotels að greiða 2 milljónir í málskostnað fyrir Landsrétti.