Mútur, lyfjamisnotkun og hroki

„Við þurfum að ala upp kynslóð íþróttamanna sem hefur sjálfstraust …
„Við þurfum að ala upp kynslóð íþróttamanna sem hefur sjálfstraust og getur staðið í lappirnar gegn allri óæskilegri hegðun,‟ sagði Viðar í erindi sínu. Ljósmynd/UMFÍ

„Mútur eru að verða stór hluti af íþróttum, lyfjamisnotkun og hroki. Ég sé þá víða í fjölmiðlum, íþróttamenn sem eru uppfyllir af hroka.“ Þetta sagði dr. Viðar Halldórsson félagsfræðingur í erindi sem hann hélt á ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík í dag um íþróttir og áhrif móta á unga iðkendur. „Við þurfum að ala upp kynslóð íþróttamanna sem hefur sjálfstraust og getur staðið í lappirnar gegn allri óæskilegri hegðun.‟ 

Viðar er annar tveggja hugmyndasmiða að verkefninu Sýnum karakter, samstarfsverkefnis ÍSÍ og UMFÍ. Í tilkynningu frá UMFÍ segir að hugmyndafræði verkefnisins byggi á því að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda rétt eins og líkamlega færni.

„Markmið þess snýr að þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum og á það að hvetja þjálfara og íþróttafélög til að leggja enn meiri og markvissari áherslur á að byggja upp góðan karakter hjá iðkendum og gera þá betur í stakk búna til að takast á við lífið auk þess að ná árangri í íþróttum,“ segir í tilkynningunni.

Viðar er annar tveggja hugmyndasmiða að verkefninu Sýnum karakter, samstarfsverkefnis …
Viðar er annar tveggja hugmyndasmiða að verkefninu Sýnum karakter, samstarfsverkefnis ÍSÍ og UMFÍ. Ljósmynd/UMFÍ

Þar segir að nokkur héraðssambönd og íþróttafélög vinni að því að innleiða ýmsa þætti Sýnum karakter. Breiðablik er eitt þeirra félaga  og er stefnt að því að taka upp aðferðafræðina í öllum deildum félagsins. Mikill ávinningur er af því að taka hana upp að sögn Viðars, ekki aðeins fyrir viðkomandi félag heldur líka þjálfara og iðkendur, bæði þá sem skara fram úr og þá sem standi höllum fæti.

Ekki nóg að þjálfa afrekshópa

 „Sýnum karakter eflir þá sem þurfa að finna svolítið til sín því þar byggir starfið á jafningjagrundvelli. Þar læra þjálfarar aðra nálgun og iðkendur fá trú á sjálfa sig. Og með því að bæta þá sem standa höllum fæti þá eykst metnaður þeirra almennt, er haft eftir Viðari í tilkynningunni og bent á að því miður sinni þjálfarar oft betur þeim sem standi sig vel en hinum. Þetta telur hann ekki rétt að gera.

 „Það er auðvitað fullt af foreldrum sem heldur að börnin sín séu best í heimi og eigi að vera í A-liðinu. En það býr miklu meira í hinum krökkunum, sagði hann og benti á að nýlegar rannsóknir bendi einmitt til þess að nálgun Sýnum karakter er rétt. Ekki sé nóg að þjálfa afrekshópa því huga verði að fleiri þáttum, félagslegum samskiptum og umhverfi iðkenda. Þetta sagði hann markmið Sýnum karakter og hafi það áhrif á alla innan þess félags sem innleiði verkefnið. 

Fjölbreytt erindi

Yfirskrift ráðstefnunnar Sýnum karakter var: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Sjö erindi voru á ráðstefnunni. Þar á meðal sagði Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar, frá því hvernig félagið vinni um þessar mundir að því að innleiða hugmyndafræði verkefnisins í allar deildir aðildarfélaga, Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, sagði frá breytingum á mótafyrirkomulagi í áhaldafimleikum barna og Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ, sagði frá því hvernig fótbolti yngri flokka hafi breyst.

Yfirskrift ráðstefnunnar Sýnum karakter var: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða …
Yfirskrift ráðstefnunnar Sýnum karakter var: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Sjö erindi voru á ráðstefnunni. Ljósmynd/UMFÍ

Sveinn Þorgeirsson, aðjúnkt á íþróttafræðasviði HR, sagði frá handboltaleikjum barna og ýmsum nýjungum og André Lachance frá Sport for life í Kanada sagði frá breyttum hugsanahætti í þjálfun og íþróttaiðkun.

Að lokum lýsti Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fjölmiðlakona þeim jákvæðu áhrifum sem íþróttaiðkun hafi haft á fatlaðan son sinn.

Vefsíða Sýnum karakter

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert