„Þetta var meiriháttar í gær og það voru allir svo glaðir, bæði við starfsmenn og þátttakendur,“ segir Börkur Gunnarsson, kynningarfulltrúi Reykjavík International Film Festival (RIFF), um lokakvöld kvikmyndahátíðarinnar sem fór fram í gær, í samtali við mbl.is.
„Það seldist mjög vel á hátíðina. Við vorum með færri stórstjörnur í ár heldur en í fyrra og maður var smá stressaður um athyglina en við vorum eiginlega með betra prógram heldur en í fyrra og það virtist draga fólk að,“ segir hann og bætir við:
„Það var mikið dansað í gær og öllu starfsfólkinu er létt.“
Kvikmyndahátíðin RIFF hófst 26. september og lýkur í dag en eiginlegt lokakvöld var haldið í gær þrátt fyrir að margar bíómyndir verði sýndar í Bíó Paradís í dag. Er þetta í 16. skipti sem hátíðin er haldin.
Börkur þakkar velgengnina íslenskum kvikmyndaáhugamönnum, sem og erlendum, sem kaupa sig inn á hátíðina ár eftir ár. „Þetta gengur ekkert upp öðruvísi en að fólk kaupi sig inn. Þá getum við haldið áfram að koma með kvikmyndaperlur til landsins.“
Spurður um fjölda gesta miðað við í fyrra gat hann ekki svarað því nákvæmlega enda ekki með tölurnar fyrir framan sig en hann hefur það á tilfinningunni að hátíðin hafi verið meira sótt í ár heldur en í fyrra.
„Það er alltaf stress þegar maður er að byrja hátíðina, hvort að fólk komið eða ekki. Maður hefur tilfinningu fyrir því hvað dregur fólk að en maður getur aldrei verið viss,“ útskýrir hann.
Aðalverðlaun hátíðarinnar hlaut kvikmyndin Munaðarleysingjaheimilið (The Orphanage) eftir Shahrbanoo Sadat sem Katja Adomeit framleiddi.
„Hún var ekki endilega að draga fólk að sér til að byrja með og það var ekki uppselt á allar sýningar en það var uppselt á allar sýningar á myndum sem höfðu slegið í gegn á Cannes kvikmyndahátíðinni,“ segir Börkur og bætir við:
„Það voru þrjár myndir sem slógu í gegn þar og við vorum með þær allar. Það voru Lighthouse, The Dead Don‘t Die og Parasite. Við hefðum getað sýnt þær tíu sinnum í viðbót og það hefði alltaf orðið uppselt.“
Að lokum minnti Börkur á að margar vinsælustu kvikmyndir hátíðarinnar í ár verða sýndar í Bíó Paradís í dag og nálgast má dagskránna á vefsíðu RIFF.